Gistiheimilið Reynir
Gistiheimilið Reynir er fjölskyldufyrirtæki staðsett á Reyni í Reynishverfi. Stefna okkar er að bjóða uppá snyrtilega og notalega gistingu á góðum stað. Gistiheimilið samanstendur af 5 húsum sem hvert og eitt eru eitt herbergi auk húss sem er sameiginlegt rými fyrir öll herbergin þar sem gestir hafa aðgang að sturtu, eldunaraðstöðu og aðstöðu til að setjast niður og borða. Hvert herbergi er útbúið með tveimur 90cm rúmum (það er möguleiki á að setja inn það þriðja eða barnarúm) í herbergjunum er snyrting með vaski og wc. Umhverfið í kring er frábært, úr herbergjum er útsýni yfir Dyrhólaey, útá sjó og til jökla. Það er tilvalið fyrir fólk að fara í gönguferðir , þar sem t.d. er hægt að ganga niður í Reynisfjöru eða á Reynisfjall þar sem hægt er að sjá lundann ,svo er útsýnið þaðan yfir staðina í kring frábært. Alla þjónustu svo sem verslanir, sundlaug, golfvöll, veitingastaði og fleira er auðvitað hægt að sækja til Víkur en það er um 7 mínútna akstur þangað.|
Staðsetning
|
|
![]() Smelltu á mynd til að sjá nánar |
|


